Skoðun

Aukið á réttaróvissu

Guðjón Jensson skrifar
Þjóðlendulögin frá 1998 eru að mörgu leyti einkennileg lagasetning. Megintilgangur þeirra var sá að greiða úr þeirri réttaróvissu sem ríkti um eignarhald á hálendi Íslands, eða eins og segir í 2. grein: „Íslenska ríkið er eigandi lands og hvers konar landsréttinda og hlunninda í þjóðlendum sem ekki eru háð einkaeignarrétti." Komið var á sérstakri nefnd, „Óbyggðanefnd", sem rannsaka skyldi þessi mál og gera kröfur fyrir hönd ríkisins.

Nefnd þessi hafði mjög ítarlegt vald til að rannsaka og úrskurða um eignarrétt. Verður úrskurðum hennar ekki skotið til ráðherra sem æðra stjórnvalds (14. gr.) heldur skyldi sá sem þótti sig bera halla af úrskurði nefndarinnar höfða einkamál innan 6 mánaða frá því að hann hafði verið birtur í Lögbirtingarblaði (19. gr.).

Þar með er sönnunarbyrðinni snúið við, þ.e. úrskurður Óbyggðanefndar stendur uns honum hefur verið hnekkt. Niðurstaðan getur verið glannaleg, byggð á nokkuð frjálslegri túlkun heimilda. Ber þá þeim sem ekki vill una að stefna ríkisvaldinu um endurheimt eignarréttar síns og færa sönnur fyrir máli sínu. Hafa mörg kostuleg dæmi verið nefnd í þessu sambandi. Má þar nefna svonefndan Geitlandsdóm þar sem norðanverður Kaldidalur er dæmdur þjóðlenda með vísun í Landnámu en eignarréttur Reykholtskirkju hundsaður þrátt fyrir að kirkjan eigi Geitland með skógi, en svo stendur skýrum stöfum í Reykholtsmáldaga, sem er elst varðveitt skjal á Íslandi (elsti hluti hans talinn vera frá 1185, Saga Íslands II:75).

Geitlandsdómur

Um Geitlandsdóm Hæstaréttar hefur dr. Einar Gunnar Pétursson skrifað: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/564037/

Þá má nefna vægast sagt undarlega niðurstöðu Óbyggðanefndar um Lónsöræfi, en fyrir um öld voru eiganda Stafafells í Lóni seld öræfi þessi af sama aðila, ríkisvaldinu, og nú hefur yfirtekið án bóta.

Á slóðinni: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/584227/ má lesa óánægju landeigenda í Austur-Skaftafellssýslu um kröfur Óbyggðanefndar á hendur þeim. Þeir telja, sem réttilegt er, að ríkisvaldið sé að ganga á stjórnarskrárvarinn eignarrétt þeirra. Þá er einnig góð grein um Stafafell í Lóni eftir Gunnlaug Ólafsson: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1138328/

En hvernig er háttað heimildaöflun þeirra sem málið varðar vegna eignarréttar? Í opinberum skjalasöfnum er umtalsvert magn skjala sem varða eignarrétt. Talið er að nálægt 16 þúsund skjöl liggi órannsökuð hjá Árnastofnun, Landsbókasafni og Þjóðskjalasafni. Ekki er ljóst hvort þar kunna að vera heimildir um eignarhald á landi sem dæmt hefur verið sem þjóðlenda. Því kann að vera að síðar komi í leitirnar sönnunargögn um eignarrétt á landi sem ekki var vitað um þegar niðurstaða var fengin í dómsmálum um þjóðlendur á Íslandi. (Heimild: http://landeigendur.is/landbunadur/wgbi.nsf/Attachment/fundargerd_lli_2010_adalfundur/$file/fundargerd_lli_2010_adalfundur.pdf)

Ljóst er að þjóðlendumál hafa fremur aukið á réttaróvissu í mörgum tilfellum en greitt úr. Hefur verið farið af stað meira af kappi en forsjá?

Heimildir um eignarrétt jarða, sveitarfélaga og annarra aðila þarf að rannsaka betur en verið hefur. Veita þarf aukið fé til þessara mála.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×