Látlaust og stílhreint í ár 2. desember 2012 16:00 Þórdís Brynjólfsdóttir á fallegt heimili sem hún leggur mikla alúð við að skreyta og fegra um jólin. MYND/ANTON
Þórdís Brynjólfsdóttir er mikið jólabarn og hefur alltaf skreytt heimilið hátt og lágt fyrir jólin. Hún er hrifnust af hvítu og silfruðu en svart fær oft að fylgja með. Þórdís Brynjólfsdóttir hefur alltaf skreytt heimilið sitt mikið fyrir jólin. „Ég er mjög mikið jólabarn og hef alltaf verið mikið fyrir glingur og skraut en það hefur eitthvað dregið úr þessum áhuga að undanförnu. Ég á mikið af skrauti en nota það ekki næstum því allt og í ár verða skreytingarnar ef til vill eitthvað látlausari." Þórdís segist vera hrifnust af hvítum lit bæði þegar kemur að jólaskrauti og almennt á heimilinu. „Ég nota mest hvítt og silfur. Ég hef prófað aðra liti, til dæmis var ég með fjólubláar jólakúlur einhvern tímann en varð leið á þeim eftir nokkra daga og tók þær niður," segir hún og hlær. - lbh
Jólafréttir Mest lesið Fjölnir rifjar upp eftirminnileg jól Jól Hannyrðir fyrir jólin Jól Jólagleðin við völd - myndir Jól Risa piparkaka í formi jólapeysu Jól Jólasveinar meðal okkar Jól Gyðingakökur Jól Millisterkt lakkríssinnep Jól Hátíð í bæ Jól Þrettándagleði víða á höfuðborgarsvæðinu í dag Jól Sálmur 76 - Hin fegursta rósin er fundin Jól