Skoðun

Færum Sjálfstæðisflokkinn aftur til fólksins í landinu

Jakob F. Ásgeirsson skrifar
Sjálfstæðisflokkurinn er á vegamótum. Hann hefur að ýmsu leyti fjarlægst uppruna sinn, gleymt hinum gömlu og góðu gildum sjálfstæðisstefnunnar. Í vissum skilningi má jafnvel segja að hann hafi fjarlægst fólkið í landinu, einstaklingana og lífsbaráttu þeirra, og samsamað sig um of sérfræðiálitum og öflugum hagsmunasamtökum.

Það er lífsnauðsyn að færa Sjálfstæðisflokkinn aftur til almennings og gera hann á ný að brjóstvörn einstaklinga og smáfyrirtækja gagnvart stórhagsmunum og alltumlykjandi ríkisvaldi.

En það gerist ekki nema það eigi sér stað rækileg endurnýjun á framboðslistum flokksins. Það gerist ekki nema flokkurinn bjóði upp á frambjóðendur sem njóta trausts og búa yfir fjölbreyttri reynslu.

Trúverðug og skýr stefna

Landsstjórnin er í algerum ógöngum. Almenningur finnur það á sjálfum sér. Fólkið í þessu landi leitar að trúverðugum valkosti. Sjálfstæðisflokkurinn á að vera sá valkostur. Fólk vill leiðsögn. Sjálfstæðisflokkurinn á að veita þá leiðsögn.

Hvernig á að leysa snjóhengjuvandann? Hvernig á að takast á við yfirgang erlendu vogunarsjóðanna? Hvernig á að bregðast við skuldavanda heimilanna og treysta í sessi séreign einstaklinga á húsnæði sínu? Hvernig á að brjótast út úr skattpíningarhlekkjum vinstri stjórnarinnar sem lama einstaklingsframtakið og drepa starfsemi smáfyrirtækja í dróma? Hvernig á að treysta stoðir sjávarútvegsins á ný? Hvernig á að hleypa nýju lífi í atvinnulífið og skapa hagvöxt sem gerir það meðal annars að verkum að fólkið sem flutti burt eftir bankahrunið snúi aftur heim til Íslands?

Í öllum þessum efnum verður Sjálfstæðisflokkurinn að bjóða upp á trúverðuga og skýra stefnu.

Samhliða á hann að beita sér fyrir því að gerð verði víðtæk úttekt á ríkisgeiranum með það fyrir augum að laga hann að þörfum 300.000 manna þjóðfélags og þar með lækka svo um munar þær byrðar sem lagðar eru á skattgreiðendur þessa lands og skapa forsendur fyrir öflugu velferðar- og menntakerfi til framtíðar.

Sjaldan hefur verið ríkari þörf á því en nú að vinna sjálfstæðisstefnunni framgang – treysta frelsi einstaklingsins, stuðla að frjálsu og öflugu atvinnulífi og standa vörð um sjálfstæði landsins.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×