Hagnaðist um 1,7 milljarða 21. nóvember 2012 06:00 Steinþór Pálsson
Landsbankinn hagnaðist um tæplega 1,7 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi ársins. Bankinn birti uppgjör sitt fyrir fjórðunginn á fimmtudag. Uppsafnaður hagnaður fyrstu níu mánuði ársins er þar með 13,5 milljarðar en til samanburðar var hagnaður 27,0 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir afkomu bankans einkennast af neikvæðri þróun á virðisbreytingum útlána en að öðru leyti sé rekstur bankans á áætlun. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru hreinar vaxtatekjur bankans 26,4 milljarðar en voru 24,6 á sama tímabili í fyrra. Hreinar þjónustutekjur voru hins vegar 3,1 milljarður og minnkuðu um 7% milli ára. Rekstrarkostnaður var 17,8 milljarðar og jókst um 15% milli ára. Þá færði bankinn útlán niður um ríflega sjö milljarða sem er meðal annars tilkomið vegna gjaldfærslu í tengslum við yfirtökuna á SpKef og vegna endurútreikninga gengistryggðra lána. Heildareignir bankans í lok september voru 1.057 milljarðar og var eiginfjárhlutfall (CAD) hans 24,1%. Þá er lausafjárhlutfall 46%. Því er nokkurt svigrúm til arðgreiðslna sem gætu hafist á næsta ári. Ríkissjóður á ríflega 81% hlut í Landsbankanum en Landsskil, dótturfélag gamla Landsbankans, á tæplega 19%.- mþl
Fréttir Mest lesið Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Viðskipti innlent Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Sjá meira