Skoðun

Auknar kröfur

Ari Trausti Guðmundsson skrifar
Á ferðum vegna framboðs til embættis forseta Íslands barst Alþingi oft í tal. Vissulega telja margir ýmislegt athugavert við störf þess og enn fremur að verulega vanti upp á traustið og virðinguna. Helst var fundið að flýtimeðferð sumra stærri mála, málþófi, óvönduðum málflutningi, málafjölda og skorti á frumkvæði eða þekkingu í mikilvægum málum. Flestir töldu það einbert mál þingsins og stjórnmálaflokkanna að hlusta á gagnrýnina, ræða vandann og taka hressilega til á vinnustaðnum. Ástæða þeirrar afstöðu er sú vissa að aðkoma annarra að málinu er í orði en ekki á borði, og gildir einu hvort um er að ræða stjórnmálafræðing, Jón og Gunnu eða forseta Íslands.

Í stöku tilviki komu upp raddir sem lýstu því að „forsetinn þyrfti að taka í lurginn á þingmönnum“ en við umræður kom jafnan í ljós að hann hefur ekki annað til ráða en umvandanir eða ábendingar. Telja verður sennilegast að þær yrðu auðveldlega að nöldri eða endurtekningum sem fljótt tapa merkingu.

Þegar sitjandi forseti heldur því fram að þjóðin hafi nokkrar áhyggjur af þingstörfum, er óþarft að draga orðin í efa en öðru máli gegnir um staðhæfingar um að verði ekki tekið á vandanum „munu áfram aukast kröfur um afskipti hans af setningu laga umfram það sem hefur tíðkast“. Fyrir því segist hann hafa boðskap margra, bæði „kjósenda og einstakra frambjóðenda, í aðdraganda kosninganna“. Sú staðhæfing er ekki studd rökum.

En hvað sem því líður verður að staðhæfa ýmislegt á móti, með dálitlum rökum. Bein afskipti forseta af lagasetningu felast í málskotsréttinum margumtalaða en ekki neinu öðru. Sitjandi forseti getur þá, samkvæmt nýföllnum orðum, fjölgað nei-unum við frumvörpum samþykktum á Alþingi. Ekki verður séð að það leysi vanda þess. Þarna er stjórnarskráin skýr. Vilji hann leggja fram frumvarp (sbr. 25 gr. stjórnarskrárinnar), verður það aðeins gert með fulltingi forsætisráðherra sbr. 13. greinina: Forsetinn lætur ráðherra framkvæma vald sitt. Ráðuneytið hefur aðsetur í Reykjavík. Vandséð er hvað það læknar innan þings eða hvort forsetafrumvarp fengist lagt fram, í hvaða tilgangi og hvaða meðferð það fengi. Aftur er stjórnarskráin skýr. Og varla á forsetinn við setningu bráðabirgðalaga (sbr. 28. gr.). Forseti minnir réttilega á í ræðu sinni við setningu Alþingis að með lögum skuli land byggja. Nú skuldar hann öllum víðtækar skýringar á staðhæfingunni um hvernig hann sér fyrir sér auknar kröfur um eigin afskipti af lagasetningu og hvaða úrræði hans þær kalla á. Um það verða gerðar kröfur á haustmánuðum.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×