Fótbolti

Tyresö felur peningana

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þóra og félagar hafa tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar.
Fréttablaðið/Ernir
Þóra og félagar hafa tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar. Fréttablaðið/Ernir
Sænskir fjölmiðlar greindu frá því í vikunni að LdB Malmö, lið Söru Bjarkar Gunnarsdóttur og Þóru Bjargar Helgadóttur, glímdi við fjárhagslega erfiðleika.

„Við tökum ekkert eftir þessu. Öll laun hafa verið greidd og í raun ekkert rætt um þetta mál. Eins og þetta er lagt upp fyrir okkur er engin ástæða til þess að hafa áhyggjur," segir Þóra Björg. Landsliðsmarkvörðurinn vinnur þessa dagana hörðum höndum að lokaritgerð sinni í meistaranámi í sjálfbærri stjórnun og þekkir því vel til viðskiptahátta hjá fyrirtækjum sem íþróttafélögum.

„Fæst fyrirtæki hafa fengið tekjur fyrir allt árið til þess að halda þeim á floti. Þannig ganga viðskiptin yfirleitt fyrir sig," segir Þóra sem segir forráðamenn sænska liðsins hafa farið yfir málin með leikmönnum í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum.

„Fjölmiðillinn velur úr orð, hefur eftir fólki og þetta var leiðrétt. Þeir hafa aldrei leynt stöðunni fyrir okkur að það vanti eina og hálfa milljón sænskra króna. Þeir sögðu að það hefði ekkert breyst og staðan væri óbreytt. Þeir hafa alltaf látið okkur vita um stöðu mála," segir Þóra.

Tyresö fer aðrar leiðirEngar fregnir hafa borist af fjárhagsvandræðum helsta keppinautarins Tyresö sem hin brasilíska Marta spilar með. Þóra kann skýringar á því.

„Félagið felur peningana. Það lætur styrktaraðilana borga leikmönnunum beint. Peningarnir birtast því ekki í bókum félagsins. Fréttamennirnir hafa ekki vit á því að kafa meira í það. Ég myndi giska á að launakostnaður hjá Malmö sé ekki meðal topp þriggja félaganna í deildinni. Það eru áhugaverðar áherslur í þessari umfjöllun," segir Þóra.

Sara Björk á eitt ár eftir af samningi sínum við sænsku meistarana. Samningur Þóru rennur hins vegar út að tímabilinu loknu.

„Ég klára ritgerðina í lok mánaðarins og svo fer ég að skoða mín mál," segir landsliðsmarkvörðurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×