Lífið

BIN-hópurinn safnar undirskriftum fyrir Nasa

Páll Óskar er meðlimur í BIN-hópnum.
Páll Óskar er meðlimur í BIN-hópnum.
BIN-hópurinn hrindir af stað undirskriftasöfnun á netinu eftir helgi í þeirri von að stöðva framkvæmdir sem standa til í miðbænum. Framkvæmdirnar varða fyrirhugaðar breytingar þar sem breyta á gamla Landsímahúsinu og skemmtistaðnum Nasa í hótel.

Nafnið BIN stendur fyrir Björgum Ingólfstorgi og Nasa og hefur hópurinn hist reglulega vegna málsins frá árinu 2009. Meðal þeirra 12 sem skipa kjarna hópsins eru söngvarinn Páll Óskar og Halla Bogadóttir, kennd við verslunina Kraum. Nú þegar hefur nokkrum undirskriftalistum verið komið af stað vegna málsins en engum á vegum BIN-hópsins.

Þessi listi verður afhentur Alþingi, Reykjavíkurborg og Húsafriðunarnefnd og verður hann kennitöluvarinn. -trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.