Samstarf

Vertu heilbrigð og falleg - án aukaefna

Með andlitslínunni frá Neutral getur þú með góðri samvisku hugsað vel um húðina því að í henni eru engin ilm- og litarefni, paraben eða alkóhól. Merki dönsku astma- og ofnæmissamtakanna og Svansmerkið eru trygging þín fyrir því að varan inniheldur engin efni sem eru skaðleg fyrir þig eða umhverfið.
Með andlitslínunni frá Neutral getur þú með góðri samvisku hugsað vel um húðina því að í henni eru engin ilm- og litarefni, paraben eða alkóhól. Merki dönsku astma- og ofnæmissamtakanna og Svansmerkið eru trygging þín fyrir því að varan inniheldur engin efni sem eru skaðleg fyrir þig eða umhverfið.
Á hverjum degi notum við alls konar húðvörur til að hreinsa og mýkja húðina. Margar þeirra innihalda bæði ilmefni og önnur óæskileg aukaefni og úr verður kokteill af aukaefnum, sem eykur líkurnar á snertiofnæmi.

Margar snyrtivörur eru merktar sem náttúrulegar eða lífrænar en það er ekki trygging fyrir því að þær innihaldi ekki ofnæmisvaldandi efni. Fáir þú ofnæmi fyrir ilmefnum losnarðu aldrei við það aftur og Íslendingum með ofnæmi fer sífellt fjölgandi.



Án ilm- og litarefna

Neutral hefur þróað andlitslínu sem er algerlega án ilm- og litarefna, alkóhóls og parabena. Allar vörur frá Neutral bera merki dönsku astma- og ofnæmissamtakanna sem er trygging fyrir því að efnafræðingar hafa metið innihald varanna gaumgæfilega og gengið úr skugga um að þær séu á engan hátt skaðlegar húðinni. Þú þarft því ekki að þekkja innihaldsefnin og hafa áhyggjur af skaðlegum efnum í húðvörunum þínum – það er búið að kanna það fyrir þig!



5 góð ráð til að forðast snertiofnæmi:

1. Gakktu úr skugga um að húðvörurnar þínar séu lit- og lyktarlausar

2. Mundu að náttúrulegar og lífrænar húðvörur geta líka innihaldið ofnæmisvaldandi efni

3. Lærðu hvaða efni eru óæskileg og forðastu að nota húðvörur sem innihalda slík efni

4. Kauptu vörur sem bera merki Astma- og ofnæmissamtakanna og Svansmerkið til að vera viss um að varan innihaldi engin óæskileg efni

5. Mundu að dýrustu húðvörurnar eru ekki endilega þær bestu

Neutral-andlitslínan fæst í Hagkaup.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×