Viðskipti innlent

Nova vinsælast hjá neytendum

Iceland Express fær hins vegar lægstu einkunnina
Iceland Express fær hins vegar lægstu einkunnina
Nova er það fyrirtæki sem íslenskir viðskiptavinir eru hvað ánægðastir með, samkvæmt íslensku ánægjuvoginni fyrir árið 2011. Iceland Express fær hins vegar lægstu einkunnina. Ríkisútvarpið sagði frá niðurstöðunum í gær.

Í fréttinni kemur fram að þetta er þrettánda árið í röð sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Nova fékk flest stig og er jafnframt sigurvegari í flokki farsímafyrirtækja. Íslandsbanki fékk hæsta einkunn fjármálafyrirtækja og Tryggingamiðstöðin meðal tryggingafélaga. Atlantsolía er efst olíufélaga og Bónus í flokki matvöruverslana. - shá






Fleiri fréttir

Sjá meira


×