Lífið

Aðeins það besta fyrir Corea

Chick Corea
Chick Corea
Eins og komið hefur fram spilar píanósnillingurinn og Grammyverðlaunahafinn Chick Corea í Eldborgarsal Hörpu 24. apríl ásamt Gary Burton en miðasala hefst í dag.

Heimildir Fréttablaðsins herma að það mikilvægasta í samningaviðræðunum við þá félaga hafi ekki verið peningarnir heldur að útvega nógu góðan flygil fyrir Corea.

Einnig gerðu þeir kröfur um að að flygillinn yrði rétt stilltur og hann yrði ekki of lengi á sviðinu fyrir tónleikana. Eftir að þeim var bent á alla þá flygla sem Harpa hefur upp á að bjóða ákvað Corea að velja þann flottasta og dýrasta, eða Steinway D.

- þeb, fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.