Lífið

Stóri dagurinn í apríl

Nýja breiðskífan verður endurbætt útgáfa af frumburðinum My Head Is an Animal.
Nýja breiðskífan verður endurbætt útgáfa af frumburðinum My Head Is an Animal.
Fyrsta breiðskífa Of Monsters and Men á erlendum markaði kemur út í Bandaríkjunum og Kanada 3. apríl á vegum Universal.

Mikil eftirvænting ríkir eftir gripnum enda fékk stuttskífan Into the Woods mjög góðar viðtökur vestanhafs, bæði á Billboard-listanum og á iTunes. Nýja breiðskífan verður endurbætt útgáfa af frumburðinum My Head Is an Animal sem kom út hér heima í fyrra og náði gullsölu. Upptökum lauk nýverið í Reykjavík með aðstoð upptökustjórans Jacquire King sem hefur unnið með Kings of Leon og Modest Mouse.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.