Körfubolti

Ellefu ára undrabarn í körfubolta

Hinn 11 ára gamli Julian Newman er enginn venjulegur körfuboltadrengur. Hann er algert undrabarn í íþróttinni sem rúllar upp 17 og 18 ára gömlum strákum.

Fyrir tveim mánuðum síðan skoraði hann 91 stig í aðeins þrem leikhlutum gegn jafnöldrum sínum. Þá var ákveðið að leyfa honum að spila með stóru strákunum sínum.

Þar hefur hann farið á kostum og í síðasta leik skoraði hann 14 stig, gaf 8 stoðsendingar og stal þrem boltum.

Sjón er sögu ríkari sjá má þennan smáa en knáa strák í leik á myndbandinu hér að ofan og neðan.





<iframe width="640" height="360" src="http://www.youtube.com/embed/H-lOPSSdb6w?feature=player_detailpage" frameborder="0" allowfullscreen></iframe>




Fleiri fréttir

Sjá meira


×