Enski boltinn

Sunnudagsmessan: Quashie ræðir um Joe Allen og Liverpool

Nigel Quashie var gestur í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 í gær og þar tjáði hann sig m.a. um gengi Liverpool. Quashie hefur ákveðnar skoðanir á Joe Allen, landsliðsmanni frá Wales. Hinn 22 ára gamli miðjumaður kom til Liverpool s.l. sumar frá Swansea þar sem að Brendan Rodgers, núverandi knattspyrnustjór Liverpool, var áður knattspyrnustjóri. Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason ræddu við Quashie um Liverpool í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 í gær.

Quashie hefur mikla reynslu úr ensku knattspyrnunni en hann hefur leikið með QPR, Nottingham Forest, Portsmouth, Southampto, WBA, West Ham, Birmingham, Wolves og Milton Keynes Dons. Quashie er spilandi þjálfari hjá ÍR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×