Íslenski boltinn

Gummi Kristjáns: Ánægður að þetta sé frágengið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Heimasíða Start
Bolvíkingurinn Guðmundur Kristjánsson er orðinn leikmaður Start sem leikur í úrvalsdeild norsku knattspyrnunnar á næsta ári.

„Ég er mjög ánægður að þetta sé frágengið," sagði Guðmundur í samtali við Vísi í dag. „Ég var búinn að ganga frá mínum málum og heyrt frá báðum hliðum að þetta væri mjög nálægt því að klárast."

Guðmundur var í láni hjá norska félaginu á síðustu leiktíð frá Breiðabliki en Start vann b-deildina og tryggði sér sæti á meðal þeirra bestu. Breiðablik og Start hafa átt í viðræðum um kaupverðið undanfarnar vikur en Guðmundur samdi um kaup og kjör við norska félagið að lokinni leiktíðinni í byrjun nóvember.

Guðmundur var einn af lykilmönnum Start á síðustu leiktíð. Hann lék 27 leiki með liðinu og skoraði í þeim sjö mörk. Guðmundur spilaði fjölmargar stöður með Start þó hann sé að upplagi miðjumaður. Hann spilaði framarlega og aftarlega á miðjunni, á kantinum og í stöðu miðvarðar.

„Allir sem fylgdust með Start á síðasta tímabili áttuðu sig á mikilvægi Guðmundar," segir Magne Kristiansen framkvæmdastjóri Start. Hann hrósar Guðmundi og fagnar því að málið sé í höfn.

Matthías Vilhjálmsson, sem einnig var í lykilhlutverki hjá Start á leiktíðinni, skrifaði nýlega undir tveggja ára samning á dögunum líkt og fleiri lykilmenn liðsins.

„Þeir sömdu við miðjumann frá Nígeríu, mjög góðan leikmann, sem var valinn besti leikmaðurinn á tímabilinu hjá okkur," segir Guðmundur en auk þess er frágengið að Ganverji sem var iðinn við kolann við markaskorun verður áfram. Guðmundur telur liðið þó þurfa að styrkja sig.

„Ég hugsa að við þurfum að styrkja okkur aðeins. Veikleikinn okkar í sumar var að við höfðum ekki mjög breiðan hóp sem var ástæðan fyrir því að ég þurfti að leysa svona margar stöður í sumar. Ég held að við þurfum að styrkja okkur aðeins og ég held að þeir séu að reyna það," segir Guðmundur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×