Íslenski boltinn

Fanndís með samningstilboð frá Piteå

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fanndís í leik með Breiðabliki.
Fanndís í leik með Breiðabliki. Mynd/Stefán
Landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir hefur undir höndum samningstilboð frá sænska úrvalsdeildarliðinu Piteå. Þetta staðfestir hún í skorinortu samtali við sænska miðilinn Piteå-Tidningen.

Fanndís, sem er 22 ára, hefur leikið allan sinn feril með uppeldisfélagi sínu Breiðabliki. Í samtali við sænska miðilinn játar hún að hafa samningstilboð undir höndum og að hafa ráðfært sig við landsliðskonuna Hallberu Gísladóttur sem spilar með liðinu.

„Hún hefur bara sagt mér góða hluti um félagið," sagði Fanndís við sænska blaðið.

Samkvæmt heimildum miðilsins er norskt félag einnig á höttunum eftir Fanndísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×