Fótbolti

Moa tryggði Hannover sigurinn á Stuttgart

Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og voru menn heldur betur á skotskónum þar á bæ.

Wolfsburg vann góðan sigur á Bayer Leverkusen 3-1 á heimavelli Bas Dost gerði eitt mark fyrir Wolfsburg en Diego gerði tvö.

Monchengladbach vann öruggan sigur á Greuther Furth 4-2 en leikurinn fór fram á Playmobil-vellinum.

Síðan vann Hannover Stuttgart 4-2 á Mercedes-Benz Arena en Mohammed Abdellaoue kom inná sem varamaður þegar um hálftími var eftir af leiknum og skoraði tvo mörk fyrir Hannover og tryggði þeim sigurinn.

Úrslit kvöldsins:

Wolfsburg - Bayer Leverkusen - 3 - 1

Greuther Furth – Monchengladbach - 2 - 4

Stuttgart – Hannover - 2 - 4




Fleiri fréttir

Sjá meira


×