Fótbolti

Affelay ekki búinn að gefast upp á Barca

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Hollendingurinn Ibrahim Affelay ætlar sér að fara aftur til Barcelona að tímabilinu loknu og vinna sér sæti í liðinu.

Affelay kom til Barcelona frá PSV í heimalandinu árið 2010 en fékk lítið að spila á sínu fyrsta tímabili með liðinu og kom helst við sögu sem varamaður.

Hann var lánaður til Schalke í Þýskalandi í sumar þar sem hann hefur þótt standa sig vel.

„Það er markmið mitt að snúa aftur til Barcelona," sagði hann við fjölmiðla í heimlandinu. „Það er þó líka mikilvægt að ég njóti þess að stunda íþróttina. Þessi löngun hefur aldrei verið sterkari," sagði hann.

„Það er ekki sjálfgefið að maður sé heill heilsu og fái að spila. Það hef ég fengið að reyna á eigin skinni og þess vegna nýt ég þess enn betur nú."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×