Körfubolti

Valur og Keflavík unnu baráttusigra í bikarnum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kristrún Sigurjónsdóttir hafði óvenju hægt um sig í leiknum í dag og skoraði aðeins sjö stig.
Kristrún Sigurjónsdóttir hafði óvenju hægt um sig í leiknum í dag og skoraði aðeins sjö stig. Mynd/Anton
Kvennalið Vals og Keflavíkur tryggðu sér í dag sæti í átta liða úrslitum Powerade-bikarsins í körfubolta.

Valskonur fengu Íslandsmeistara Njarðvíkur í heimsókn. Heimakonur leiddu með ellefu stigum eftir fyrsta leikhlutann en gestirnir minnkuðu muninn jafnt og þétt. Fyrir lokafjórðunginn munaði aðeins tveimur stigum.

Valskonur virtust vera að landa öruggum sigri en þær leiddu 66-59 þegar ein og hálf mínúta lifði leik. Gestirnir skoruðu þá sex stig í röð en Valskonur lönduðu eins stigs sigri 66-65.

Lele Hardy átti frábæran leik í liði gestanna og skoraði 29 stig auk þess að taka 22 fráköst. Alberta Auguste var atkvæðamest hjá Val með 11 stig og 12 fráköst en Unnur Lára Ásgeirsdóttir skoraði 13 stig.

Valur-Njarðvík 66-65 (17-6, 14-17, 10-16, 25-26)

Valur: Unnur Lára Ásgeirsdóttir 13/8 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 12/7 fráköst, Alberta Auguste 11/12 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 7/6 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 7/4 fráköst/5 stolnir, María Björnsdóttir 4/4 fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 4/4 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 4, Þórunn Bjarnadóttir 4/6 fráköst.

Njarðvík: Lele Hardy 29/22 fráköst/7 stolnir, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 12/5 fráköst, Svava Ósk Stefánsdóttir 8/6 fráköst, Ásdís Vala Freysdóttir 7, Erna Hákonardóttir 3, Aníta Carter Kristmundsdóttir 2, Salbjörg Sævarsdóttir 2/8 fráköst/3 varin skot, Eyrún Líf Sigurðardóttir 2.

Keflavík lagði Hauka
Bryndís Guðmundsdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir áttu fínan leik með Keflavík í dag.Mynd/Stefán
Keflavík gerði góða ferð í Hafnarfjörðinn þegar liðið lagði Hauka 89-84. Leikurinn var í járnum frá upphafi til enda en gestirnir lönduðu að lokum fimm stiga sigri.

Jessica Ann Jenkins skoraði 24 stig fyrir Keflavík. Á hæla hennar komu Bryndís Guðmundsdóttir með 19 stig, Birna Valgarðsdóttir með 16 stig og Pálína Gunnlaugsdóttir með 15 stig.

Hjá heimakonum var Margrét Rósa Hálfdánardóttir stigahæst með 23 stig. Næst kom Siarre Evans með 17 stig og heil 20 fráköst.

Fyrr í dag tryggði Stjarnan sér sæti í átta liða úrslitum keppninnar eftir sigur á Breiðabliki.

Haukar-Keflavík 84-89 (23-17, 18-23, 25-29, 18-20)

Haukar: Margrét Rósa Hálfdanardóttir 23/5 fráköst, Siarre Evans 17/20 fráköst/5 stoðsendingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 15/5 fráköst/5 stoðsendingar, Lovísa Björt Henningsdóttir 9/6 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 7, Dagbjört Samúelsdóttir 6, María Lind Sigurðardóttir 5/5 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 2.

Keflavík: Jessica Ann Jenkins 24/6 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 19/4 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 16/4 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 15/8 fráköst/7 stoðsendingar/5 stolnir, Ingunn Embla Kristínardóttir 8/4 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 4/13 fráköst/7 stoðsendingar, Sandra Lind Þrastardóttir 3.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×