Lífið

Andrea Jóns leikur Jöru

Tónlistarkonan Jara frumsýndi nýtt myndband í Hörpu í gærkvöldi. Því var leikstýrt af Loga Hilmarssyni og er við lagið Hope sem kom út fyrir nokkru. Myndbandið er fjögurra mínútna langt og fjallar um ævi Jöru. Hún fékk tólf ára stelpu til að leika sig unga og svo útvarpskonuna Andreu Jónsdóttur til að leika eldri útgáfuna af sér. Myndlistarmaðurinn Kolbeinn Hugi Höskuldsson leikur pabba hennar. -fb





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.