Menning

Tala saman gegnum tónlist

„Það er hugmynd aðstandenda Sláturs að henda okkur saman í tónleika og heyra hvað gerist,“ segir hún um spunatónleika sína, Charity Chan og Röggu Gísla í Hafnarhúsinu í kvöld.
„Það er hugmynd aðstandenda Sláturs að henda okkur saman í tónleika og heyra hvað gerist,“ segir hún um spunatónleika sína, Charity Chan og Röggu Gísla í Hafnarhúsinu í kvöld.
Meðal atriða á Sláturtíð í ár eru samstarfs-og spunatónleikar Kristínar Þóru Haraldsdóttur víóluleikara, Charity Chan píanóleikara og Ragnhildar Gísladóttur söngkonu í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi klukkan átta í kvöld.

Við náðum tveggja mínútna spjalli við Kristínu Þóru í gær áður en hún skaust inn í tíma að kenna og spurðum beint: "Hvað er það sem þið Ragga og Charity ætlið að fara að fremja í Listasafninu? "Hm, það sem ég get sagt er að við erum að hittast til að spila saman í fyrsta skipti.

Við höfum allar unnið við tónlist og það sem við gerum einkennist mikið af spuna en það er hugmynd aðstandenda Sláturs að henda okkur saman í tónleika og heyra hvað gerist."

Mikið eruð þið hugaðar, eru fyrstu viðbrögð blaðamanns við þessum tíðindum. "Já, en þegar fólk hittist finnur það sér sameiginlegan flöt og fer að spjalla - það sama gerist í tónlist, við hljótum að finna leið til að tala saman gegnum hana, eða við treystum því. Reyndar ætlum við að sjá hver framan í aðra í kvöld en erum ekki búnar að ákveða hvort við grípum í hljóðfærin."

Kristín Þóra kveðst ekki vita hvort Ragga muni nota eitthvað annað en röddina sína en Charity noti hljóðfærið bæði á hefðbundinn og óhefðbundinn hátt og það sama eigi við um hana sjálfa. "Stundum notum við líka önnur instrúment og raddirnar," segir hún. "En í þessu tilfelli veit ég bara að ég kem með sjálfa mig og víóluna."

Sláturtíð hófst í gær og stendur til laugardags. Tónleikarnir eru allir haldnir í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur klukkan 20 en að auki verða sérstakir svefntónleikar aðfaranótt laugardags í Dansverkstæðinu, Skúlagötu 30 þar sem gestum er boðið að koma og upplifa tónlist í gegnum svefn og vöku frá miðnætti til morguns. Svo lýkur hátíðinni á kammerpartýstónleikum á laugardagskvöldið. Nánar á http://slatur.is/slaturtid.

- gun






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.