Menning

Popup sýning opnar á morgun

Smelltu á mynd til að skoða fleiri myndir.
Smelltu á mynd til að skoða fleiri myndir.
Netgalleríið Muses.is opnar á morgun á efstu hæð í skrifstofuhúsnæði í Höfðatorgi Borgartúni popup- eða skyndisýningu þar sem nítján listamenn munu sýna verk sín. Galleríið hefur tekið hæðina yfir í þeim tilgangi að setja upp svoköllaða popup- eða skyndisýningu þar sem nítján listamenn sýna verk sín.

Sýningar Muses.is eru hráar og reyna listamenn að nýta það rými sem býðst hverju sinni en þær eru yfirleitt haldnar í tómum iðnaðarhúsnæðum. Það verður eflaust jafn fallegt útsýnið að innan sem útan frá 19. hæðinni á Höfðatorgi.

Opnunin verður á morgun, föstudag 19. október klukkan 19:00 en sýningin verður opin frá kl 13:00-18:00 laugardag og sunnudag 20. og 21. október.



Listamenn sýningarinnar: Bergþór Morthens, Björn Árnason, D.Íris Sigmundsdóttir, Halldór Sturluson, Harpa Rún Ólafsdóttir, Hugleikur Dagsson, Hulda Hlín Magnúsdóttir, Inga María Brynjarsdóttir, Kalli Youze, Kristinn Már Pálmason, Ninna Þórarinsdóttir, Sara Oskarsson, Sylvía Dögg Halldórsdóttir, Sævar Karl, Sævar Jóhannsson, Víðir Mýrmann, Þorvaldur Jónsson, Ziska og Örn Tönsberg.

Muses.is

Það hefur verið nóg að gera á nítjándu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.