Lífið

Óvænt hlé á tónleikum

Eins og búast mátti við var salurinn þéttsetinn og áhorfendur fengu sannarlega góða sýningu þar sem afmælisbarnið naut meðal annars fulltingis hljómsveitanna Todmobile, Blúsmanna og Grafík.

Um miðbik tónleikanna vildi það hins vegar til að ljósin voru kveikt og öllum vísað úr salnum af öryggisástæðum. Skömmu síðar kom í ljós að óboðinn gestur hafði rekist í brunaboða baksviðs og engin hætta því á ferðum. Gátu Andrea og félagar því haldið áfram þaðan sem frá var horfið og kláruðu tónleikana með stæl.

- þj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.