Fótbolti

Elia valdi Werder Bremen

Hollendingurinn Eljero Elia er kominn aftur til Þýskalands eftir stutta dvöl hjá Juventus á Ítalíu. Werder Bremen keypti hann af Juve.

Kaupverðið var 5.5 milljónir evra. Elia lék aðeins fimm leiki fyrir Juventus á sínu eina ári í ítalska boltanum en hann kom til Juve frá Hamburg.

"Ég var með tilboð frá liðum bæði í Þýskalandi og Englandi. Mér leist samt best á að fara til Bremen og tel það henta mér best," sagði Elia.

"Bremen vill sækja og leikstíll liðsins er mér að skapi. Þetta verður spennandi tímabil."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×