Fótbolti

Tap hjá Veigari Páli og félögum

Veigar Páll.
Veigar Páll.
Veigar Páll Gunnarsson lék fyrsta klukkutímann fyrir Vålerenga sem tapaði á heimavelli fyrir Molde, 1-2, í norsku úrvalsdeldinni í dag.

Joshua Gatt kom Molde yfir á 26. mínútu en sá er leysti Veigar af hólmi, Marcus Pedersen, jafnaði leikinn á 69. mínútu eða aðeins níu mínútum eftir að hann kom inn af bekknum.

Það dugði þó ekki til því Davy Angan skoraði sigurmark Molde þrem mínútum fyrir leikslok.

Vålerenga er sem fyrr í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×