Sport

Ótrúleg endurkoma Federer og tennisáhugafólk andar léttar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Federer fagnar í leikslok en leikurinn tók 204 mínútur eða um þrjá og hálfa klukkustund.
Federer fagnar í leikslok en leikurinn tók 204 mínútur eða um þrjá og hálfa klukkustund. Nordicphotos/Getty
Roger Federer þurfti að taka á honum stóra sínum gegn Frakkanum Julien Benneteau í 3. umferð einliðaleiks karla á Wimbledon-mótinu í tennis í gærkvöldi. Federer lenti tveimur settum undir en knúði fram sigur í ótrúlegum fimm setta leik.

Federer átti ekki góðar minningar frá viðureign sinni við Frakka fyrir leikinn. Svisslendingurinn féll úr keppni í átta liða úrslitum á mótinu í fyrra. Þá hafði Jo-Wilfried Tsonga betur gegn sexfalda Wimbledon meistaranum.

Í upphafi leit út fyrir að hið sama myndi endurtaka sig. Benneteau vann 6-4 sigur eftir mikla baráttu í fyrsta settinu þar sem Federer varðist tveimur settstigum af stakri snilld.

Ekki minnkaði spennan í öðru setti sem fór í oddalotu. Aftur hafði Frakkinn betur og tennisáhugamenn um allan heim leist ekki á blikinu. Spánverjinn Rafael Nadal féll óvænt úr keppni gegn lítt þekktum Tékka í fyrra kvöld. Allt í einu útlit fyrir að tvær af skærustu stjörnum íþróttarinnar kæmust ekki í gegnum fyrri vikuna á mótinu sögufræga.

Federer var á öðru máli. Hann vann sigur í þriðja setti örugglega 6-2 en baráttan var í algleymingi í fjórða settinu. Settið fór í oddalotu sem þurfti að hækka en Federer vann oddalotuna 8-6.

Í fimmta settinu gerði mjólkursýran vart við sig hjá Frakkanum sem tvívegis fékk aðhlynningu nuddara til þess að hjálpa til við krampa. Reglum samkvæmt mega keppendur aðeins fá læknisaðstoð svo segja má að nuddið hafi verið á gráu svæði. Það skipti hins vegar engu máli.

Federer vann síðasta settið gegn Frakkanum þreytta örugglega 6-1 og tryggði sér sæti í hópi síðustu 16 keppendanna.

Federer mætir Belganum Xavier Malisse í 16 manna úrslitunum. Belginn, sem situr í 75. sæti heimslistans, hefur komið nokkuð á óvart og slegið út Frakkann Gilles Simon og Spánverjann Fernando Verdasco á leiðinni í stóra leikinn gegn Federer.

Leikur kappanna fer fram á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×