Björn Bergmann skoraði og klúðraði víti | Sex Íslendingalið áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júní 2012 18:52 Björn Bergmann Sigurðarson.
Björn Bergmann Sigurðarson skoraði eitt marka Lilleström í 3-0 sigri á Ullensaker/Kisa í norsku bikarkeppninni í kvöld. Sex Íslendingalið komust áfram í 4. umferð en þrjú lið skipuð íslenskum leikmönnum duttu úr keppni. Björn Bergmann kom Lilleström í 1-0 í 3-0 sigrinum á Ullensaker/Kisa en fimm mínútum áður hafði hann skotið yfir úr vítaspyrnu sem Pálmi Rafn Pálmason fékk. Björn Bergmann fór útaf í hálfleik en Pálmi spilaði allan leikinn. Indriði Sigurðsson spilaði allan leikinn þegar Viking vann 2-0 útisigur á Åsane. Andrés Már Jóhannesson spilaði allan leikinn í hægri bakverðinum þegar Haugesund vann 8-2 heimasigur á Egersund en Andrés Már lagði upp fimmta mark liðsins. Guðmundur Kristjánsson spilaði allan leikinn með Start þegar liðið vann 1-0 útisigur á Kongsvinger en Matthías Vilhjálmsson gat ekki verið með vegna meiðsla. Kristján Örn Sigurðarson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson spiluðu báðir með Hönefoss þegar liðið tapaði í vítakeppni á móti Mjöndalen. Sverrir Hilmar Gunnarsson skoraði úr síðasta víti Mjöndalen. Birkir Már Sævarsson spilaði ekki með Brann vegna meiðsla þegar liðið vann 3-0 útisigur á Nest Sotra. Veigar Páll Gunnarsson spilaði fyrri hálfleik þegar Vålerenga tapaði 1-3 fyrir Sandefjord eftir framlengdan leik. Haraldur Björnsson sat allan tímann á bekknum þegar Sarpsborg 08 tapaði 1-2 á útivelli á móti Hödd eftir framlengdan leik.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Glugginn lokaður: Aston Villa og Man City sigruðu gluggann Enski boltinn Ísfold Marý til liðs við Víking Íslenski boltinn Markmannskapall FCK: Rúnar Alex þriðji markmaður? Fótbolti Reykjavíkurmeistarar KR byrja Lengjubikarinn á sigri Íslenski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 16. umferðar Körfubolti Líta það alvarlegum augum þegar þjálfari niðurlægir iðkendur Sport Forsetinn beinskeyttur aðspurður um framtíð Alfreðs í starfi Handbolti Leikhlé Dags vakti athygli: „Til fjandans með þá alla“ Handbolti Kossinn „skemmdi einn besta dag lífs míns“ Fótbolti Pétur stígur til hliðar hjá Keflavík Körfubolti Fleiri fréttir Ísfold Marý til liðs við Víking Reykjavíkurmeistarar KR byrja Lengjubikarinn á sigri Markmannskapall FCK: Rúnar Alex þriðji markmaður? Neituðu tilboði Burton í Arnór Ingva Chelsea kom til baka í síðari hálfleik Sveindís Jane heldur í við toppliðin Martínez með slitið krossband Rashford: „Vil bara spila fótbolta“ Kossinn „skemmdi einn besta dag lífs míns“ Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Stálust til að vera tólf á vellinum: „Algjört hneyksli“ Glugginn lokaður: Aston Villa og Man City sigruðu gluggann Ósáttur Haaland eldri skýtur á Arsenal Hæddist að Haaland og nú vita allir hver hann er Skagamenn kaupa Hauk frá Lille Rashford genginn í raðir Villa Rómverjar stöðvuðu sigurgöngu toppliðsins Stjarnan/Álftanes fagnaði sigri en Víkingur heldur titlinum Róbert Orri semur við Víkinga Orri skoraði annan leikinn í röð Skytturnar gengu frá Englandsmeisturunum Mateta skaut niður Man. United á Old Trafford Albert skoraði á móti gömlu félögunum Hákon fékk fyrst á sig sjálfsmark og svo var hann klobbaður Hákon byrjar sinn fyrsta leik í ensku deildinni Lewandowski tryggði Barcelona sigur Manchester United búið að kaupa Danann frá Lecce „Vertu auðmjúkur“ leikurinn, taka tvö Salah orðinn sá sjötti markahæsti í sögunni: „Erum á réttri leið“ United sækir annað ungstirni frá Arsenal Sjá meira