Skoðun

Stuðningsgrein: Frá fortíð til framtíðar

Guðný Gústafsdóttir skrifar
Fyrir rúmlega þremur áratugum urðu skil í Íslandssögunni þegar Vigdís Finnbogadóttir gaf kost á sér til forseta. Í kosningabaráttunni áttu sér stað átök sem fólust í því að sögulegar hefðir tókust á við nýjungar. Aldrei fyrr hafði kona boðið sig fram til forseta á Íslandi. Háværar raddir þeirra sem töluðu gegn kosningu Vigdísar tíunduðu óspart sögulegt fordæmisleysi framboðsins. Þá þótti það heldur ekki sæma að einstæð móðir sæti á Bessastöðum. Fjölmiðlar kepptust við að spyrja forsetaefnið út í það hvernig í ósköpunum hún ætlaði að halda veislur og bjóða höfðingjum heim, einsömul manneskjan. Þá þótti hún ekki nógu frambærileg. Hún færi vel í sjónvarpi að kenna frönsku en lengra út í almannarýmið átti ekki að hleypa henni.

Þau sem tóku þátt í meginstraums-orðræðunni í þá tíð, sem beindist gegn kosningu Vigdísar Finnbogadóttur, tóku þátt í að ríghalda í fortíðina, viðhalda úreltum hugmyndum um hlutverk kynjanna og sporna gegn framþróun. Þann 29. júní 1980 báru hinsvegar þau sigur úr býtum sem kusu ný sjónarmið, ný viðhorf og nýja ímynd til handa Íslandi.

Í kosningabaráttunni í dag kveður við gamalkunna tóna. Í dag snýst baráttan aftur um gömul gildi og ný, fortíð og framtíð. Aftur þenur stór hluti þjóðarinnar raddböndin á móti breytingum. Í dag á konan í fararbroddi mann. Hún á bara ekki „réttan“ mann; hann á fortíð og er ekki heilagur. Aftur setur fólk spurningamerki við færni konunnar. Aftur telst hún fara vel í sjónvarpi að stýra spurningakeppni en það þykir ekki víst að henni farnist sem bústýra á Bessastöðum. Hún ætti að einbeita sér að eigin búi og börnum segja þau sem hunsa sameiginlega umsjá foreldra með börnum sínum og tala gegn raunverulegu jafnrétti kynjanna. Enn og aftur skal konunni ekki treyst fyrir æðsta embætti þjóðarinnar úti í hinu alþjóðlega rými.

Með fullri virðingu fyrir öllum frambjóðendum þá stendur lokaslagurinn milli Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur. Karls sem er kominn á eftirlaun og konu í blóma lífsins. Ólafi Ragnari nægir þó ekki að vísa í eigið kyn til að halda völdum eins og talið var nægja fyrir þrjátíuogtveimur árum. Hann vísar til annarra og máttugri afla; óvissu og óstöðugleika. Ólafur talar beint inn í aldagamla hefð karllægs forræðis sem á úrslitastundu grípur til örþrifaráða í þeim tilgangi að ná eða halda völdum.

Spurningin er ágæta þjóð hvort við viljum láta halda okkur á óttamottunni og í fortíðinni eða horfa til framtíðar. Hvort við viljum láta gamla drauga vofa yfir landinu eða kjósa nýja ímynd út á við. Ég kýs Þóru af því að hún er einfaldlega hæfasti frambjóðandinn.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×