Enski boltinn

Bild segir Tottenham hafa gengið frá kaupum á Gylfa

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Þýska blaðið Bild greinir frá því á heimasíðu sinni í kvöld að íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson sé genginn í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham.

Kaupverðið er að sögn þýska blaðsins tíu milljónir evra eða sem nemur tæpum 1,6 milljarði íslenskra króna. Gylfi hefur undanfarnar vikur verið orðaður við Liverpool auk Swansea þar sem hann var að láni frá þýska félaginu Hoffenheim á síðustu leiktíð.

Bild greinir ekki frá því hvaðan blaðið hefur heimildir sínar varðandi vistaskipti Gylfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×