Skoðun

Stuðningsgrein: Kjósum breytingar

Marinó G. Njálsson skrifar
Um næstu helgi fara fram forsetakosningar.  Valið stendur nánast um að halda óbreyttu ástandi eða breyta til.  Ég kýs breytingar.

Sitjandi forseti hefur verið í embættinu álíka lengi og núverandi útskriftarárgangur úr grunnskóla hefur lifað.  Hann vill bæta við framhaldsskólaárum þeirra.  Einnig er hægt að líta á það þannig, að hann er búinn að sitja lengur en nemur skólagöngu 22 ára einstaklings og ætlar að sitja út að útskrift læknanemans sem byrjaði í 6 ára bekk hausið 1996.  Þetta er langur tími, allt of langur tími.

Við hvað eru kjósendur hræddir?  Að ferskir vindar leiki um höfuðbólið?  Að annar einstaklingur taki ekki upp hanskann fyrir almenning í landinu, þegar stjórnmálamenn ganga of langt?  Þeim rökum hefur verið haldið vel á lofti að Ólafur Ragnar hafi bjargað þjóðinni.  Er eins og fólk gangi út frá því sem vísu að einhver annar forseti, sem settur hefði verið í sömu stöðu hefði ekki tekið sömu ákvörðun.  Ég held að sú ályktun sé röng.  Ég held að hver einasti forseti sem fengið hefði tugþúsundir undirskrifta frá almenningi í landinu hefði orðið að leggjast undir feld og íhuga þann möguleika að vísa þessum lögunum til þjóðarinnar.  Gleymum því ekki, að þegar Ólafur Ragnar fékk ekki tugþúsundir undirskrifta, þá samþykkti hann fyrsta Icesave-samninginn.  Hann gerði einhvern fyrirvara, en hann veit og við vitum það öll, að slíkur fyrirvari er marklaust hjal.

Meðal frambjóðenda er ein manneskja, sem með réttu er hægt að segja að hafi staðið með almenningi í gegn um þykkt og þunnt í þrengingum síðustu ára og þurfti ekki tugþúsundir undirskrifta til.  Þá á ég við Andreu Jóhönnu Ólafsdóttur.  Hún hefur rekið baráttu (ásamt fjölmörgum öðrum sjálfboðaliðum), sem skilað hefur heimilum landsins vel á þriðja hundrað milljarða í leiðréttingu lána (ef ekki meira).  Baráttu sem skilað hefur fyrirtækjum landsins örugglega tvöfaldri þeirri tölu í leiðréttingu sinna lána.  Barátta sem gert hefur stórum hluta heimila og fyrirtækja landsins kleift að sjá fram út skuldavanda sínum.  Vissulega hefur þetta m.a. gerst fyrir atbeina dómstóla, en ef Andreu, Hagsmunasamtaka heimilanna, Samtaka lánþega og fleiri baráttujaxla hefði ekki notið við, þá er ég ekki viss um að baráttan hefði staðið svona lengi og árangur verið svona góður.

Ekki hafa allar kröfur um bætt umhverfi heimilanna verið uppfylltar.  Treysti ég engum af frambjóðendum til forseta eins vel til að tryggja rétta niðurstöðu en einmitt Andreu Jóhönnu Ólafsdóttur.  Hún hefur reynsluna, hún hefur viljann og hún hefur getuna.

Kjósum nýtt Ísland – Kjósum Andreu Jóhönnu Ólafsdóttur sem næsta forseta Íslands!




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×