Sport

Einar Daði: Rosalega gaman að keppa fyrir framan allt þetta fólk

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd / Ivano Catini
Einar Daði Lárusson, frjálsíþróttamaður úr ÍR, lauk í dag sinni fyrstu tugþraut á stórmóti í frjálsum íþróttum. Einar Daði hafnaði í 13. sæti á Evrópumeistaramótinu í Helsinki með 7.653 stig sem er hans næstbesti árangur í þraut.

„Ég vildi fara í þessa þraut, fljóta í gegnum hana og klára. Upplifa svona stórmót, ná góðri niðurstöðu og mér fannst þetta ganga mjög vel. Mér líður rosalega vel," sagði Einar Daði í samtali við undirritaðan en hann hafði þá nýlokið við að skokka sig niður ásamt keppinautum sínum í Helsinki.

Evrópumeistaramótið var í beinni útsendingu á fjölmörgum sjónvarpsstöðum í álfunni. Því voru myndavélar ofan í keppendum auk þess sem fjölmennt var í áhorfendastúkunni. Einar Daði segir það ekki hafa haft neikvæð áhrif á sig.

„Ef ég á að segja alveg eins og vel var púlsinn lægri ef eitthvað var," segir Einar Daði og hlær. „Ég var búinn að dempa mig svolítið niður. Ég vildi taka þessu létt og afslappað, fara vel í gegnum þetta og af öryggi. Það er frábært að það skildi ganga svona," segir Einar Daði sem hafnaði í 13. sæti af 26 keppendum.

Átta keppendur heltust úr lestinni en algengt er að þónokkrir keppendur verði frá að hverfa enda keppnin löng og stöng. Auk þess geta byrjunarhæðir og þjófstört sett strik í reikninginn. Eitt og sér að klára keppni sem þessa, í frumraun á stórmóti, er því afrek sem skildi ekki vanmeta.

Gengur allt saman vel í rólegheitunumEinar Daði segist hafa notið undanfarinna tveggja daga í Helsinki.

„Það er rosalega gaman að keppa á velli fyrir framan svona margt fólk. Það er aldrei svona heima. Fjölskyldan og aðstandendur mæta en það eru svo fáir að fylgjast með þessu. Hérna var alveg pakkað," segir Einar Daði sem ætlar að gefa líkamanum kærkomna hvíld.

Aðeins tvær og hálf vika er síðan Einar Daði náði metþraut sinni, 7.892 stigum í Kladnó í Tékklandi en að sögn hans er mælst til þess að tvær vikur minnst líði á milli þrauta. Hann hefur þó hug á að keppa í einstökum greinum á Íslandi í sumar.

„Mig langar að hlaupa 100 metrana hratt, keppa í stangarstökki, kringlu og spjóti. Þetta eru greinar sem mig langar að keppa í. Ég held ég geti gert betur í þessum greinum og náð meiri stöðugleika, sérstaklega í spjótinu. Mig langar líka að kasta kringlunni aðeins lengra," segir tugþrautarmaðurinn metnaðarfulli sem er með báða fætur á jörðinni.

„Þetta gengur allt saman vel í rólegheitunum," segir Einar Daði.


Tengdar fréttir

Einar Daði í tólfta sæti fyrir lokagreinina

Einar Daði Lárusson, frjálsíþróttamaður úr ÍR, kastaði lengst 51,75 metra í spjótkastinu í tugþrautarkeppninni á Evrópumótinu í Helsinki. Einar Daði hlaut 615 stig fyrir vikið og er áfram í 12. sæti.

Einar Daði kominn niður í tólfta sæti - tvær greinar eftir

Einari Daða Lárussyni gekk ekki nóg vel í annarri greininni í röð í tugþrautarkeppninni á Evrópumótinu í frjálsum í Finnlandi þegar hann fór bara yfir 4,60 metra í stangarstökkinu. Einar Daði er í 12. sæti eftir átta greinar með 6354 stig.

Einar Daði í níunda sæti eftir fyrri daginn

ÍR-ingurinn Einar Daði Lárusson endaði fyrri dag tugþrautarkeppninnar á Evrópumótinu í frjálsum með því að ná góðu 400 metra hlaupi. Einar Daði hljóp 400 metrana á 49.07 sekúndum og er í 9. sæti eftir fyrri daginn.

Einar Daði byrjaði vel á EM - persónulegt met í 100 metrunum

ÍR-ingurinn Einar Daði Lárusson setti persónulegt met í fyrstu greininni í tugþrautarkeppni Evrópumótsins í frjálsum íþróttum þegar hann hljóp 100 metra hlaup á 11,11 sekúndum. Einar Daði er í 15. sæti eftir fyrstu grein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×