Fótbolti

Bayern sankar að sér efnilegustu leikmönnum Þýskalands

Weiser fagnar í leik með unglingalandsliðinu.
Weiser fagnar í leik með unglingalandsliðinu.
Bayern Munchen er búið að semja við einn efnilegasta leikmann Þýskalands, Mitchell Weiser, en hann kemur til félagsins frá Köln.

Weiser er búinn að skrifa undir samning við Bayern til ársins 2015 og hann hefur fengið treyjunúmerið 23. Drengurinn er aðeins 18 ára gamall.

"Með Mitchell Weiser og Emre Can erum við komnir með tvo hæfileikaríkustu leikmenn Þýskalands i aðalhópinn okkar," sagði Christian Nerlinger, íþróttastjóri Bayern.

Weiser er afar fjölhæfur. Getur spilað í vörninni sem og allar miðjustöður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×