Skoðun

Stuðningsgrein: Forseta fyrir alla – sem leiðir okkur inn í nýja öld

Jón Pálsson skrifar
Það eru á margan hátt forréttindi að vera Íslendingur. Að tilheyra þjóð, þar sem við fæðumst með tiltölulega jafnan rétt til lífsgæða, s.s. velferðar, menntunar og atvinnu. Að eiga jafnan hlut í dýrmætum þjóðararfi menningar og auðlinda, náttúru og mannréttindum óháð ætt, kyni, stjórnmálaskoðunum eða búsetu.

Þennan dýrmæta arf færðu forfeðrakynslóðir okkur sem nú lifum með ærinni fyrirhöfn, og honum ber okkur að ávaxta og færa áfram til komandi kynslóða.

Það hefur lengst af ekki skipt stóru máli hvaða stjórnmálaskoðanir Íslendingar hafa eða hvort þeir tilheyri einhverjum tilteknum hópum, sem sitji betur að þjóðararfinum.

En er þessi mynd af draumalandinu okkar raunsönn? Eða fór kannski eitthvað úrskeiðis á síðustu árum liðinnar aldar og þeim fyrstu þessarar aldar? Við eignuðumst allt í einu einhverskonar yfirstétt, sem virtist telja sig „jafnari"en aðrar stéttir í okkar jafna og stéttlausa þjóðfélagi; stétt sem tók til sín óhóflega, fór ógætilega með og hirti ekki svo mikið um þau gömlu góðu íslensku gildi að við værum öll í sama samfélagi með sama rétt.

Kannski var það gæfa þjóðarinnar að þetta misskipta kerfi hrundi eftir skamma tilveru. En hvernig skyldi okkur miða í því að endurreisa samfélagið? Er okkur að takast að byggja upp í anda þjóðfundanna, þar sem hugtök á borð við heiðarleika, virðingu, réttlæti, jákvæðni og sjálfbærni voru ofarlega á baugi?

Því miður hafa önnur gildi verið of áberandi í þjóðfélagsumræðunni undanfarin ár. Reiði, heift, hroki, ókurteisi, hagsmunabarátta og andstæðar fylkingar eru hugtök, sem koma því miður oftast í hugann þegar fylgst er með þjóðfélagsumræðunni síðustu misserin.

Íslensk þjóð þarf leiðtoga, sem kemur hinum jákvæðu gildum á dagskrá og leiðir okkur aftur á þá braut, sem við öll viljum að þjóðin komist á; braut jafnréttis, heiðarleika, virðingar og réttlætis.

Er ekki góð byrjun að velja okkur forseta, sem getur axlað þetta verkefni og hefur með störfum sínum og áherslum sýnt og sannað að honum er vel treystandi til þess að koma þessum góðu gildum á dagskrá? En um leið forseta, sem kann þá list að hlusta á þjóð sína og skynja hennar hjartslátt þannig að vilji þjóðarinnar allrar verði leiðarljósið, ekki bara vilji sumra, sem etv. tala hæst?

Þóra Arnórsdóttir er að mínu mati einmitt sá forsetaframbjóðandi, sem er treystandi til þessa mikilvæga verkefnis. Kjósum Þóru sem næsta forseta Íslands.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×