Fótbolti

Bayern liggur ekkert á að semja við Dzeko

FC Bayern München er í framherjaleit og umboðsmaður Edin Dzeko, leikmanns Man. City, hefur komið þeim skilaboðum á framfæri til liðsins að Dzeko sé til í að koma þangað.

Forráðamenn Bayern ætla þó að fara sér hægt í þessum málum og liggur ekkert á að ganga frá kaupum á Dzeko ef félagið á annað borð hefur áhuga á því.

"Okkur liggur okkur ekkert á og það er engin pressa á okkur. Það er ekki satt að búið sé að ganga frá þessum málum," sagði Christian Nerlinger, íþróttastjóri Bayern.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×