Fótbolti

Björn Bergmann: Ekki að hugsa um að fara

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Björn Bergmann Sigurðarson er einn eftirsóttasti sóknarmaður Norðurlandanna um þessar mundir ef marka má fréttir í Englandi og Noregi.

Björn Bergmann skoraði sigurmark Lilleström gegn Sogndal í gær og hefur þar með skorað sex mörk í síðustu þremur deildarleikjum sínum.

Norskir fjölmiðlar segja að fulltrúar frá Everton, Ipswich og Anderlecht hafi verið á leiknum en Björn Bergmann hefur einnig verið orðaður við Wolves, Fulham og Reading - svo einhver félög séu nefnd.

Eftir leikinn sagði Björn að hann væri ekki að velta þessum málum fyrir sér. „Ég er ekki að hugsa um að fara frá þessu félagi. Kannski fer ég síðar en núna er ég bara að hugsa um einn dag í einu," sagði hann.

„Auðvitað vilja allir knattspyrnumenn taka skref yfir í betra umhverfi en ég ætla fyrst og fremst að njóta þessa sigurs í dag. Ég er ekki að velta öðru fyrir mér."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×