Fótbolti

Matthías með mark í sigri Start

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Matthías hefur farið vel af stað hjá Start
Matthías hefur farið vel af stað hjá Start
Matthías Vilhjálmsson, leikmaður Start í Noregi, var á skotskónum þegar liðið vann góðan 3-0 sigur á Bodö/Glimt í norsku fyrstu deildinni í dag.

Matthías skoraði annað mark liðsins á 33. mínútu leiksins með skalla.

Start hefur farið vel af stað á tímabilinu og situr það á toppi deildarinnar eftir sigurinn í dag, með 18 stig eftir níu leiki.

Liðið hefur þó spilað einum leik meira en liðið í öðru sætinu en níunda umferðin klárast síðar í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×