Handbolti

Vignir í fjórtán daga bann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vignir í leik með íslenska landsliðinu á EM í Serbíu.
Vignir í leik með íslenska landsliðinu á EM í Serbíu. Mynd/Vilhelm
Vignir Svavarsson hefur verið dæmdur í tveggja vikna bann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í leik Hannover-Burgdorf og Eintracht Hildesheim um helgina.

Þetta kom fram í þýskum fjölmiðlum í dag. Vignir missir því af heimaleik Hannover-Burgdorf gegn Gummersbach eftir slétta viku en hann nær þó síðustu tveimur deildarleikjum tímabilsins, gegn Flensburg og Lübbecke.

Vignir mun svo yfirgefa Hannover-Burgdorf þegar að samningur hans rennur út í sumar en hann mun þá ganga í raðir Minden, sem leikur sem nýliði í efstu deild á næsta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×