Körfubolti

Pippen: Chicago ennþá sterkastir

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Pippen vann sex NBA titla með Chicago á sínum tíma
Pippen vann sex NBA titla með Chicago á sínum tíma
Gamla Chicago hetjan, Scottie Pippen, segir Chicago Bulls ennþá vera með sterkasta liðið í úrslitakeppninni í NBA deildinni í ár. Liðið missti á dögunum sinn mikilvægasta leikmann, Derrick Rose út tímabilið og hafa margir afskrifað liðið í baráttunni um titillinn.

Pippen skrifaði dramatískt hvatningarbréf til liðsins, sem birt var á heimasíðu félagsins í dag.

„Þið hafið misst einn stríðsmann en ég veit að þið eigið mikið inni. Þið eruð ennþá sterkasta liðið í NBA deildinni. Allavega þangað til að eitthvað annað lið afsannar það," sagði Pippen.

„Nú er tími til þess að fara út á völlinn og sanna það. Þið hafið unnið ykkur það inn enda hafiði unnið marga leiki í ár, án Derrick Rose. Það er kominn tími til þess að rísa upp og standa sig," sagði Pippen að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×