Fótbolti

Guðmundur og Matthías á skotskónum með Start

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Kristjánsson skoraði tvö mörk í kvöld.
Guðmundur Kristjánsson skoraði tvö mörk í kvöld. Mynd/Haraldur
Guðmundur Kristjánsson og Matthías Vilhjálmsson voru báðir á skotskónum þegar Start vann 5-0 stórsigur á Vard Haugesund í 2. umferð norsku bikarkeppninnar í kvöld. Guðmundur skoraði tvö mörk og Mathhías skoraði eitt og lagði upp annað.

Matthías lagði upp fyrsta mark Start fyrir Nicolai Aas á 20. mínútu og Guðmundur kom liðinu síðan í 3-0 með tveimur mörkum á 70. og 79. mínútu. Matthías bætti við fjórða markinu á 87. mínútu og Espen Søgård innsiglaði sigurinn í uppbótartíma.

Matthías hefur í miklum ham með Start í b-ddeildinni en hann hefur skorað fjögur mörk í fjórum fyrstu umferðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×