Fótbolti

Dortmund meistari í Þýskalandi

Kagawa fagnar marki sínu í dag sem gulltryggði sigur Dortmund.
Kagawa fagnar marki sínu í dag sem gulltryggði sigur Dortmund.
Borussia Dortmund tryggði sér í dag þýska meistaratitilinn í knattspyrnu annað árið í röð. Þó svo deildinni sé ekki lokið er forskot Dortmund það mikið að FC Bayern getur ekki náð liðinu.

Dortmund lagði Borussia Mönchengladbach, 2-0, í kvöld og gulltryggði meistaratitilinn. Ivan Perisic og Shinji Kagawa skoruðu mörk Dortmund í leiknum.

Glæsilegur árangur hjá Dortmund og menn þar í borg munu örugglega fagna langt fram á nótt og líklega eitthvað á morgun líka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×