Sport

Taphrina Charlotte heldur áfram | líklega lélegasta lið allra tíma

Michael Jordan er eigandi lélegast liðs NBA deildarinnar. Hann hefur ekki haft yfir mörgu að gleðjast á leikjum liðsins í vetur.
Michael Jordan er eigandi lélegast liðs NBA deildarinnar. Hann hefur ekki haft yfir mörgu að gleðjast á leikjum liðsins í vetur. AP
Chicago verður með heimaleikjaréttinn í gegnum alla úrslitakeppnina í Austurdeildinni og er liðið til alls líklegt. Í nótt lagði Chicago lið Indiana á útivelli 92-87 og er Chicago með sama vinningshlutfall og San Antonio Spurs sem er í efsta sæti Vesturdeildar. Derrick Rose hafði hægt um sig í liði Chicago en hann skoraði aðeins 10 stig en gaf 7 stoðsendingar.

Taphrina Charlotte Bobcats, sem er í eigu Michael Jordan, heldur áfram. Í nótt tapaði liðið 102-95 á útivelli gegn Orlando. Charlotte á einn leik eftir á tímabilinu og ef liðið nær ekki að landa sigri þar verður það með lélegasta vinningshlutfall allra tíma í NBA deildinni. Charlotte hefur aðeins unnð 7 leik í vetur en tapað 58 og er með 10,8% vinningshlutfall. Síðasti leikur Charlotte er gegn new York á útivelli. Philadelphia 76'ers var með 11% vinningshlutfall veturinn 1972-193 en liðið vann aðeins 9 leiki á því tímabil og tapaði 73.

Úrslit:

Indiana – Chicago 92-87

Cleveland - Washington 85-96

Orlando – Charlotte 102-95

Milwaukee – Philadelphia 85-90

New York – LA Clippers 99-93

Oklahoma – Denver 101-106

Phoenix – San Antonio 106-110

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×