Enski boltinn

Marko Marin til liðs við Chelsea

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Marin fagnar marki með Werder Bremen.
Marin fagnar marki með Werder Bremen. Nordic Photos / Getty
Chelsea hefur komist að samkomulagi við Werder Bremen um kaup á þýska landsliðsmanninum Marko Marin. Kaupverðið hefur verið ákveðið þó það sé óuppgefið en gengið verður frá kaupunum þegar félagaskiptaglugginn opnast í sumar.

Marin hefur komist að samkomulagi um kaup og kjör við Lundúnarfélagið. Að sögn Guardian eru líkur á því að Romanu Lukaku verði lánaður til þýska félagsins á næstu leiktíð sem hluti af samkomulaginu.

Marin er 23 ára sókndjarfur miðjumaður. Hann á ættir sínar að ríkja til Serbíu en hefur spilað 16 landsleiki fyrir Þýskaland. Hann lék tvisvar með Þjóðverjum á HM í Suður-Afríku 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×