Fótbolti

Gunnar Heiðar með tvö í sigri Norrköping

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gunnar Heiðar í landsleik gegn Japan í febrúar.
Gunnar Heiðar í landsleik gegn Japan í febrúar. Nordic Photos / AFP
Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði tvívegis í 3-2 sigri Norrköping á Malmö í efstu deild sænsku knattspyrnunnar í dag.

Gunnar Heiðar kom heimamönnum á bragðið á 21. mínútu og Norrköping leiddi í hálfleik. Gestirnir frá Malmö jöfnuðu snemma í síðari hálfleik. Aftur skoraði Gunnar Heiðar og James Frempong, samherji hans, bætti þriðja markinu við mínútu fyrir leikslok.

Gestirnir minnkuðu muninn í viðbótartíma en komust ekki lengra.

Þetta var þriðji sigur Norrköping í fyrstu sex leikjum tímabilsins. Liðið situr í 5. sæti deildarinnar með tíu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×