Fótbolti

Dortmund vann risaslaginn gegn Bayern

Robben klúðar hér víti í kvöld. Það reyndist vera ansi dýrmætt.
Robben klúðar hér víti í kvöld. Það reyndist vera ansi dýrmætt.
Dortmund tók risaskref í átt að þýska meistaratitlinum í kvöld er liðið lagði Bayern München, 1-0, á Signal Iduna Park í kvöld. Það var Robert Lewandowski sem skoraði eina mark leiksins þrettán mínútum fyrir leikslok.

Bayern fékk kjörið tækifæri til að jafna sex mínútum fyrir leikslok. Þá fiskaði Arjen Robben víti, tók það sjálfur en lét verja frá sér.

Robben fékk annað dauðafæri í uppbótartíma en hitti ekki markið.

Dortmund er komið með sex stiga forskot á Bayern eftir sigurinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×