Fótbolti

Pepe fékk tveggja leikja bann | Ramos slapp með skrekkinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ramos var allt annað en sáttur við brottvísun sína gegn Villareal.
Ramos var allt annað en sáttur við brottvísun sína gegn Villareal. Nordic Photos / Getty Images
Spænska knattspyrnusambandið hafði í nógu að snúast í gær þegar agabrot leikmanna og forsvarsmanna Real Madrid í jafnteflinu gegn Villareal í vikunni voru til umræðu.

Madridingar misstu stjórn á skapi sínu eftir að Villareal jafnaði metin í 1-1 þegar skammt var til leiksloka. Alls fengu þrír leikmenn reisupassann auk Jose Mourinho, knattspyrnustjóra liðsins. Fyrr í leiknum var þrekþjálfarinn Rui Faria sendur upp í stúku fyrir mótmæli.

Portúgalska varnartröllið Pepe fékk tveggja leikja bann fyrir niðrandi ummæli sín um dómara leiksins. Hann verður því fjarri góðu gamni í viðureign Real Madrid gegn Real Sociedad í kvöld.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Pepe verður á í messunni. Fyrr í vetur traðkaði hann á hönd Lionel Messi svo eitt dæmi af alltof mörgum sé tekið.

Mesut Özil fékk eins leiks bann en hann var sendur í sturtu eftir ljótt orðbragð í garð dómarans. Özil mótmælti brottvísun kollega síns Sergio Ramos harðlega, alltof harðlega að mati dómara leiksins.

Ramos, sem fékk sitt annað gula spjald fyrir brot skömmu eftir jöfnunarmark Villareal, slapp hins vegar með skrekkinn. Spænska sambandið afturkallaði fyrra gula spjald hans í leiknum og verður hann því með í kvöld ólíkt Özil.

Þá verða Mourinho og Faria, einnig uppi í stúku í kvöld. Mourinho fékk eins leiks bann fyrir sína brottvísun gegn Villareal. Faria fékk hins vegar tveggja leikja bann.

Madridingar voru allt annað en sáttir með dómgæsluna í leiknum og blésu af vikulegan blaðamannafund sem fara átti fram í gær. Liðið hefur sex stiga forskot á toppi deildarinnar en eiga meðal annars eftir að sækja Barcelona heim á Nou Camp.

Leikur Real Madrid og Real Sociedad hefst klukkan 19 í kvöld. Hann er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og einnig verður fylgst með gangi mála hér á Vísi.


Tengdar fréttir

Leikmenn og þjálfari Real Madrid sáu rautt í jafnteflisleik

Real Madrid er hægt og bítandi að hleypa Barcelona aftur inn í slaginn um Spánarmeistaratitilinn. Real gerði jafntefli, 1-1, gegn Villarreal í kvöld og er nú aðeins með sex stiga forskot á Barcelona. Liðin eiga þess utan eftir að mætast í deildinni á nýjan leik.

Mourinho blótaði framan í spænsku þjóðina

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, er í vandræðum eftir leik Real Madrid í gærkvöldi en lærisveinar hans gerðu þá 1-1 jafntefli við Villarreal og töpuðu þá dýrmætum stigum í titilbaráttunni við Barcelona. Mourinho var einn af þremur Real-mönnum sem fengu að líta rauða spjaldið en það er þó ekki rauða spjaldið sem fór mest fyrir brjóstið á spænsku þjóðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×