Fótbolti

Barcelona minnkaði forskot Real í sjö stig | Messi skoraði fallegt mark

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Nordic Photos/Getty
Barcelona minnkaði forskot Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í sjö stig eftir 2-0 útisigur á Sevilla á útivelli í kvöld. Real Madrid spilar við Malaga á morgun og getur þá aftur náð tíu stiga forskoti.

Xavi skoraði fyrra mark Barcelona með skoti beint úr aukaspyrnu á 18. mínútu leiksins. Lionel Messi skoraði seinna markið á 25. mínútu eftir þríhyrningsspil við Andrés Iniesta og skemmtilega vippu yfir markvörð Sevilla.

Sevilla fékk nokkur færi til að minnka muninn en Börsungar voru með fín tök á leiknum og sigur þeirra var aldrei í hættu eftir þessi tvö mörk. Þeir náðu samt ekki að bæta við mörkum í seinni hálfleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×