Ólympíuvonir Ian Thorpe snarminnkuðu | Komst ekki í úrslit í Ástralíu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. mars 2012 09:00 Ian Thorpe svekktur að loknu sundinu. Nordic Photos / Getty
Sundgarpurinn Ian Thorpe tókst ekki að tryggja sér sæti í úrslitum í 200 metra skriðsundi á úrtökumótinu fyrir Ólympíuleikana í Ástralíu í gær. Eina von Thorpe er að standa sig í 100 metra skriðsundinu á sunnudag. „Draumurinn hefur breyst í martröð," sagði Thorpe eftir sundið. Ástralinn, sem er 29 ára, hóf keppni á ný í sundi í nóvember eftir að hafa tekið sér frí frá íþróttinni. Thorpe vann á sínum tíma fimm gullverðlaun á Ólympíuleikum. „Ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Ég taldi mig geta synt hraðar, miklu hraðar," sagði Thorpe sem kom í mark á tímanum 1:49.91 mínútum. Ryan Napoleon synti hraðast á 1:47.15 mínútum. Heimsmet Thorpe frá árinu 2001 er 1:44:06 mínútur. Thorpe keppir á sunnudag í 100 metra skriðsundi sem er hans síðasti möguleiki til að komast á Ólympíuleikana. „Möguleikar mínir minnkuðu í kvöld en ég mun finna leið til þess að gefa mér sem bestan möguleika og láta þessi vonbrigði ekki eyðileggja fyrir mér," sagði Thorpe og ítrekaði markmið sitt um sæti í sundliði Ástrala.
Erlendar Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Íslenski boltinn Fleiri fréttir Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Cullen stormaði út af blaðamannafundi White og Littler mætast í 16-manna úrslitum Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Martin og félagar burstuðu botnslaginn Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Fimm töp í röð hjá Elvari og félögum Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Sektaður fyrir að vera í sitthvorum skónum Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Tapsár Tyson Fury: „Hann fékk jólagjöfina sína of snemma“ Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Luke Littler grét eftir leik Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Michael Schumacher verður afi Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Versta frumraun í úrvalsdeild? Sjá meira