Fótbolti

Elísabet og Sigurður Ragnar svara gagnrýni þjálfara Margrétar Láru

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir.
Margrét Lára Viðarsdóttir. Mynd/Nordic Photos/Getty
Vefsíðan fótbolti.net segir frá því í dag að Margrét Lára Viðarsdóttir sé umræðuefni í sænska staðarblaðinu í Kristianstad vegna ummæla Bernd Schröder þjálfara hennar hjá þýska liðinu Turbine Potsdam. Schröder er óánægður með ástandið á landsliðsframherjanum en Margrét Lára er meidd og gat ekki spilað með Turbine Potsdam í fyrri leik liðsins í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Við erum topplið í Þýskalandi og Evrópu og því er krafan að þú æfir allavega venjulega til að geta staðið þig," segir Bernd Schröder og heldur því seinna fram að það virðist ekki vera hefð fyrir því að æfa á Íslandi.

„Við vinnum með henni daglega en skoðið Svíþjóð þar sem leikmenn sjá um alla þessa hluti sjálfir. Til að geta komist áfram í Meistaradeildinni og halda áfram að standa okkur er krafan að leggja sig 100% fram. Mér finnst sem vandamál Viðarsdóttur sé ekki líkamlegt heldur andlegt en við sjáum til hvort hún geti bráðlega verið byrjunarliðsmaður," segir Schröder.

Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristianstad þar sem Margrét Lára spilaði áður, segir að það sé sorglegt að lesa þetta og að Margrét Lára sé búin að vera að glíma við þessi meiðsli í fjögur ár. Elísabet talar einnig um að það sé allt önnur menning í Þýskalandi.

Sigurð Ragnar Eyjólfsson, þjálfarikvennalandslðsins, gagnrýnir líka miklar æfingar þýska liðsins og segir að hún hafi verið í sínu besta standi hjá Kristianstad þegar hún æfði bara með fótbolta. „Að æfa stundum þrisvar á dag og spila svo leiki, teljum við of mikið fyrir hana," sagði Sigurður Ragnar í viðtalið við blaðið.

það er hægt að finna umfjöllun vefsíðunnar fótbolti.net með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×