Fótbolti

Bayern skoraði "bara" sex mörk í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arjen Robben fagnar einu marka sinna í kvöld.
Arjen Robben fagnar einu marka sinna í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Bayern München hélt markaveislu sinni áfram í dag þegar liðið vann 6-0 stórsigur á útivelli á móti Hertha Berlin í þýsku úrvalsdeildinni. Bayern hafði skorað sjö mörk í síðustu tveimur leikjum á undan, á móti Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni (7-1) og í seinni leiknum á móti Basel (7-0) í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hollendingurinn Arjen Robben skoraði þrennu í leiknum á Ólympíuvanginum í Berlín í dag en hin mörkin skoruðu þeir Thomas Müller, Mario Gomez og Toni Kroos. Franck Ribery lagði upp þrjú marka Bayern og Thomas Müller tvö. Þrjú markanna, tvö frá Robben og mark Gomez, komu úr vítum.

Shinji Kagawa tryggði Borussia Dortmund 1-0 heimasigur á Werder Bremen og Bayern er því ennþá fimm stigum á eftir toppliði Dortmund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×