Fótbolti

Guerrero dæmdur í átta leikja bann

Perúmaðurinn Paolo Guerrero, leikmaður Hamburg, var í dag dæmdur í átta leikja bann fyrir glórulaust brot á markverði Stuttgart.

Í pirringskasti tæklaði Guerrero markvörðinn með látum út við hornfána. Hann fékk réttilega að líta rauða spjaldið og nú langt leikbann.

Brotið fólskulega má sjá hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×