Fótbolti

Þrjár þýskar landsliðskonur yfirgefa Turbine Potsdam í vor

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Babette Peter sést hér í leik með þýska landsliðinu.
Babette Peter sést hér í leik með þýska landsliðinu. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Turbine Potsdam, lið Margrétar Láru Viðarsdóttur, tapaði dýrmætum stigum um helgina þegar liðið gerði 1-1 jafntefli á heimavelli á móti botnliði Bayer Leverkusen en það voru fréttirnar eftir leikinn sem voru þó enn meira áfall fyrir félagið.

Þýsku landsliðskonurnar Babette Peter, Viola Odebrecht og Bianca Schmidt tilkynntu þá þjálfaranum að þær ætluðu ekki að spila áfram með Turbine Potsdam á næsta tímabili. Engin þeirra ákvað að taka nýju samningstilboði frá félaginu.

Miðjumaðurinn Viola Odebrecht fer til VfL Wolfsburg, varnarmaðurinn Bianca Schmidt er á leiðinni til erkifjendanna í 1 FFC Frankfurt og Wolfsburg og Frankfurt keppast um að semja við varnarmanninn Babette Peter.

Þessir þrír leikmenn hafa verið með í titlum þýska landsliðsins undanfarin ár en þar á meðal eru fjórir meistaratitlar og sigur í Meistaradeildinni 2010.

Þær Peter, Odebrecht og Schmidt eru jafnframt einu leikmenn Turbine Potsdam í landsliðshóp Þýskalands í Algarvebikarnum sem hefst á morgun en Ísland mætir þá einmitt Þýskalandi í fyrsta leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×